​Leiðin hefst við upphaf Sprengisandsleiðar, fetar sig upp eftir Búðarhálsi eftir gömlum jeppaveg þangað til komið er að krossgötunum Kvíslamót miðja vegu milli einskis og neins.

Statistics

5 - 6

hrs

828

m

576

m

5

max°

Difficulty

FATMAP difficulty grade

Difficult

Description

Fyrstu 10 kílómetrarnir leiðarinner eru á malbiki í vegkanti þjóðvegarins og hálfa leið upp að Búðarhálsvirkjun þar sem beygt er inn á jeppaveginn upp á Búðarháls.

Uppi á næst hæsta punkti Búðarháls er magnað útsýni yfir fyrsta hluta Sprengisands og útsýni langt upp á Hálendi.

Við tekur furðu skemmtileg leið með grófum malarslóðum, eyðilegum grjótköflum með nokkrum gróðurvinjum á milli.

Á 20km er góður lækur en það er eina aðgengilega rennandi vatnið á þessum legg.

Þótt umhverfið sé á vissan hátt eyðilegt er hlaupaleiðin frekar fljótfarin á þessum þokkalega slóða með ýmiskonar tilbreytingu á leiðinni.

Góður kafli er niður í móti af Búðarhálsinum uns komið er að gatnamótum sem nefnast Kvíslamót.

Vegalengd 31,12km.